Benni Lund leiðbeinir Brytanum með sökkustærð í vorveiðiferð Græna bindisins í Skorradalsvatn, 6. maí 2016. |
Svenni, Bogi og Baldvin í vorveiðiferð Græna bindisins í Skorradalsvatn, 5. maí 2017. |
Það voru ekki bara meðlimir Græna bindisins sem voru að snudda á Skagaheiðinni, þriðjudaginn 23. júní 2009. |
Aðalfundur Græna bindisins var haldinn veiðihúsinu Langárbyrgi við Langá þann 5. febrúar 2016. |
Kafteinn Jói Davíðs ekur yfir Laugalæk í Landmannalaugum í ferð Græna bindisins á Landmannaafrétt, 20. júní 2007. |
Það snjóaði á Boga og Magga Arne í heita pottinum í fundarferð Græna bindisins að Geysi, 14. janúar 2018. |
Horft yfir vatnið áður en veiðin hefst, í vorveiðiferð Græna bindisins í Skorradalsvatn, 6. maí 2016. |
Veiðiferð Brytans.
Bryti Græna bindisins ákvað í sumar að skreppa í veiði án félaga sinna í Græna bindinu. Hann fór upp í Borgarfjörð og fann gott veiðivatn nokkuð frá sveitabæ. Hann var búinn að setja í nokkrar bleikjur og var að enda við að landa einni þegar bóndinn á sveitabænum kemur að honum. Þeir heilsast og tala saman en eftir það segist bóndinn nú eiga þessa bleikju. Það samþykkir Brytinn ekki og segist þekkja sinn rétt, hann hafi veitt bleikjuna og því eigi hann hana. Þá spyr bóndinn hvort að þeir eigi bara ekki að útkljá þetta með þriggja sparka reglunni, sem að er algeng regla í Borgarfirðinum.
Brytinn verður þá svolítið forvitinn og vill fá að vita meira. Bóndinn segir honum að fyrst sparki hann þrisvar í Brytann og síðan sparki Brytinn í hann þrisvar og svona gengur það þangað til að annar gefst upp. Brytinn samþykkir þetta og segir bóndanum að sparka. Bóndinn byrjar að sparka í magann á honum og Brytinn hnígur niður við það. Næst sparkar bóndinn í sköflunginn á honum, og þá er Brytinn orðinn svolítð sár en tekur samt við þriðja sparkinu sem að er mjög fast í punginn.
Eftir að Brytinn er búinn að jafna sig og staðinn upp segir hann: „Jæja nú er komið að mér” og býr sig til að sparka í bóndann. Þá heyrist í bóndanum: „Neiiii,...... mér er andskotans sama um eina bleikju, þú mátt bara eiga hana”.
Í fundarferð Græna bindisins að Geysi, 15. október 2016, fór Bogi í minnstu stafkirkju á Íslandi og dáðist að altaristöflunni. |
Jói Vigg í blíðviðrinu í Landmannalaugum í ferð Græna bindisins á Landmannaafrétt, 20. júní 2007. |
Brytinn fer yfir öryggisbúnað bátsins í ferð Græna bindisins í Hlíðarvatn í Hnappadal, 4. júní 2014. |
Svenni í basli með veiðihjólið í vorveiðiferð Græna bindisins í Djúpavatn, 1. júní 2018. |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is